Leiðsagnarnám, skref fyrir skref
Ný bók um leiðsagnarnám er komin út!
Bókinni er ætlað að gefa kennurum, sem vinna að þróun leiðsagnarnáms í grunnskólum, aðgang að hagnýtri leiðsögn sem stuðlar að árangursríku námi allra nemenda.
Bókin skiptist í fimm hluta:
- Námsmenning: Trú nemenda á eigin getu og námsvitund
- Að deila námsmarkmiðum og árangursviðmiðum
- Árangursríkar samræður sem stuðla að því að nemendur læri saman
- Sífelld leit eftir skilningi nemenda
- Endurgjöf sem leggur áherslu á árangur og framfarir
Höfundur og útgefandi er Nanna Kristín Christiansen, sem einnig er höfundur bókarinnar Leiðsagnarnám, hvers vegna, hvernig, hvað? Að hluta til er um sama efni að ræða en með nýju bókinni er aukin áhersla lögð á hagnýta leiðsögn og verkefni með tengingu við aðalnámskrá grunnskóla. Teikningar eru eftir Ásdísi Jónsdóttur.