Your Cart
Loading

Nanna Kristín Christiansen

Nanna Kristín Christiansen er uppeldis- og menntunarfræðingur og hefur starfað á sviði menntamála í áratugi. Lengst af var hún grunnskólakennari en síðar verkefnastjóri á skóla- og frístundasviði Reykjavíkur. Jafnframt hefur hún verið gestakennari við Menntavísindasvið HÍ og sjálfstætt starfandi fyrirlesari og ráðgjafi. Nanna er höfundur bókanna: Skóli og skólaforeldrar, ný sýn á samstarfið um nemandann (2010),

Leiðsagnarnám, hvers vegna, hvernig, hvað? (2021) og Leiðsagnarnám, skref fyrir skref (2024). Hún skrifaði ásamt dr. Guðrúnu Kristinsdóttur handbókina Ofbeldi gegn börnum, hlutverk skóla (2014). Nanna og Edda Gíslrún Kjartansdóttir voru ritstjórar veftímaritsins Krítarinnar (2012 – 2017)

Íslensku Menntaverðlaunin 2021

Myndir frá þróun leiðsagnarnáms