Shirley Clarke
Shirley Clarke er einn mesti sérfræðingur heims þegar kemur að því að tengja fræðin sem leiðsagnarnám byggir á við starfið í skólastofunni. Hún hefur skrifað fjölda bóka um efnið bæði ein og í samstarfi við aðra auk þess sem hún stendur fyrir námskeiðum og leiðir starfendarannsóknir kennara í Bretlandi og víðar. Að undanförnu hefur Clarke í samstarfi við Dr. Angela Evans samofið starfendarannsóknirna þróun leiða til að draga úr kvíða barna.
Clarke heldur úti vefsíðu þar sem m.a. er að finna mikinn fjölda myndbanda sem tekin eru upp í skólastofum, og annað efni um leiðsagnarám.